mánudagur, ágúst 28, 2006
fimmtudagur, ágúst 17, 2006
allt að gerast þessa dagana.. ég er s.s. búin að panta flug út, förum 28 ágúst, styttist í það! ég er komin með íbúð á kagsaa kollegíinu, þannig að við systurnar þurfum ekki að búa ofan á hvor annarri í nokkrar vikur eins og við sáum fram á! hehe Kristín fænka fer út í nótt, spennó.. við hittum hana svo þegar við komum út. Við ætlum að gista í miðbænum í 3 nætur fyrst og vera í smá fríi úti, átta okkur á því að við séum mætt á svæðið og svona, svo koma Ólöf og Snorri út á miðvikudeginum og verða fram á laugardag, ætla að hjálpa mér að tæma gáminn enda er þetta dótið frá okkur báðum. Ég flyt svo inn í íbúðina hennar Ólafar og fæ mína svona 15 sept. þá ætti ég að vera búin að flytja mest allt yfir í hana þegar Ólöf og þau koma út en það er 23 september. Gámurinn er allavega loks farinn, meira vesenið allt í kringum hann og svo er maður alltaf stressaur yfir því að pæla í hvort allt sé örugglega komið í gáminn eða hvort maður sé að gleyma einhverju hehe undir lokin var ég komin með það hugarfar að ef eitthvað gleymdist þá myndi ég bara kaupa nýtt! :-)
Svo bara endilega allir fara að plana heimsóknir út, ég er búin að kaupa fínan svefnsófa og svo er alltaf pláss í fína rúminu mínu :-) þið vitið alveg að kassi af bjór kostar svona 90kr danskar út i nettó er þakki????
Næstu helgi verður lokadjammið hér í bili ef einhver er með... eða þá bara partý úti í vetur jeeee
ég á svo að mæta í skólann 4 september úlalala... spurning um að skella einum köldum í sig áður hehehehe nehhh segi bara svona ;-)
farin að sofa.. annars verð ég bara stressuð af að hugsa um þetta allt!!
gn
mánudagur, júlí 31, 2006
jeee
Ég komst inn í skólann!! fer sem sagt í kandidatnám í Denmarks pædagogiske Universitet, í sociologi... skólinn byrjar 4 sept... veit ekki hvenær við förum út samt...
ég vill líka óska Árna Sigga og Kristínu til lukku með erfingjann... hann er nokkuð líkur henni Kristínu hehehe voða flottur strákur :-)
meira seinna!
miðvikudagur, júlí 19, 2006
líklega kominn tími á smá blogg, sumarið bara alveg að verða búið, reyndar umdeilt hvort það hafi nokkuð byrjað!
en jæja-smá updeit þá..
sumarið byrjaði með skelli þegar ég fékk gallsteinakast mjög dramatískt hehe en svona án gríns það allra versta sem ég hef lent í á ævinni, myndi með glöðu geði eiga börnin mín aftur en að lenda í þessu, allavega er ég núna gallblöðrulaus jeee
strax á eftir þessari skemmtilegu lífsreynslu útskrifaðist ég sem Leikskólakennari takk fyrir! :-) fyrir utan að vera með verki og hokin í baki þá var þetta góður dagur, fullt af fólki sem kom og heimsótti mig, ég fékk flottar gjafir, gott veður og góðan mat nammi namm.. takk fyrir mig allir..
eftir þetta hefur lítið gerst, ég er orðin góð í mallanum og farin að skella mér í ræktina aftur, sem ég er búin að vera að bíða eftir, var að verða geðveik að geta ekki hreyft mig eitthvað..
ennþá er ekkert að frétta af danmerkurmálum, en styttist í það samt.. Kristín frænka er komin inn í skólann í Lundi þannig að ef við förum þá verðum við "grannar" sem er mjög gott..
Íris frænka er komin til landsins frá Italy og Jóhann frændi kominn frá Barcelona, allir á landinu núna en það er farið að verða sjaldgjæfara alltaf hehe
ég á svo bara eftir að vinna í 2 vikur og þá er ég hætt í bankanum í bili, annaðhvort fer ég að undirbúa okkur fyrir flutninga eða frí.. ég læt ykkur vita hvort það verður hehe
ég vill svo endilega segja hvað ég er drulluánægð með hann Magna, auðvitað standa íslendingar saman á svona stundum, annað ekki hægt enda er hann einn af 10 vinsælustu söngvurum landsins ;-) ég hef vakað yfir þessu rosa spennt, finnst það bara gaman :-) væri skemmtilegra ef þetta væri aðeins fyrr þá væri hægt að hóa saman liði, panta pizzur og hafa gaman.. kannski maður geri það ef hann kemst mikið lengra :-)
ég kveð í bili, læt vita um leið og ég veit eitthv meir!
fimmtudagur, júní 08, 2006
júní kominn með sínum kuldabolum.. ótrúlegt, ég hélt maður gæti farið að pakka niður vetrarfötunum en ég þori ekki með kassann upp á háaloft alveg strax. Það styttist í að maður fái einhver viðbrögð að utan en ég hef meiri áhyggjur af því að ég fái ekki íbúð :-( það er ekki að ganga neitt rosa vel og ég hér með sendi út S.O.S. merki til allra um að hafa augu og eyru opin ef þið heyrið eitthvað sem getur hjálpað mér :-)
Annars er lítið að frétta svosem, styttist í útskriftina mína, held það verði bara opið hús eftir hádegi þannig að allir velkomnir þá.. svo eru auðvitað allir velkmnir í tjútt um kvöldið ;-) held það sé engin spurning um að það verði jafnvel bara singstar keppni jeee alltaf gaman að því :-)
Útskriftin er laugardaginn 24. júní þannig að takið bara daginn frá ..
Fanný vinkona er þessa dagana að undirbúa sig undir komu litla gaursins síns, er kominn framyfir um nokkra daga þannig að vonandi fer þetta allt að koma, gangi ykkur bara vel elskurnar :-)
Ég fór svo og kíkti á prinsessuna hjá Palla frænda og Brynju um daginn, hún er bara sæt sko, ótrúlega fín stelpa.. gaman að fá að halda á svona lítilli prinsessu :-) ég held samt að ég nenni ekki að koma með þriðja barnið, allavega ekki strax.. á eiginlega fullt í fangi með þessi 2 sem ég á!
en jæja, ætli það sé ekki best að halda áfram að vinna eitthvað :-)
miðvikudagur, maí 24, 2006
jæja, júrið búið.. finnar tóku keppnina í rassgatið, gott hjá þeim. Ég vissi svo sem alveg að við kæmumst ekki áfram en auðvitað þegar hún söng þá varð maður spenntur og allt það.. ég hálfvorkenndi henni að fá svona móttökur þó svo að hún hefði alveg mátt sjá þetta fyrir.. hún var líka drulludónaleg.. ég er samt ógeðslega hneyksluð á hversu miklir dónar grikkir eru og finnst þeir hafa gert sig að fíflum í þessu öllu, púa bara á þá sem þeir eru ekki að fíla. Ekki alveg fair, en svona er þetta... ég er bara enn að bíða eftir einkunnunum mínum.. eru ekkert að drífa sig þessir kennarar. Svo er ég búin að senda vælupósta í skólann úti en þeir segjast ekkert geta hjálpað mér, svarið kemur 28 juli og hana nú! hehe þannig að ég verð bara að bíða og krossa fingur.. ömurlegt að bíða svona lengi samt.. það er allavega pottþétt að ólöf systir fer út í september, vonandi verð ég þá mætt á svæðið jeeee
jæja verð víst að halda eitthvað áfram..
fimmtudagur, maí 18, 2006
Þá er Kennó bara formlega búinn hjá mér :-) kláraði allra síðasta skóladaginn í gær, fluttum fyrirlestra úr þróunarverkefninu okkar og enduðum svo daginn á því að skála við kennara okkar og grilla saman.. fínn dagur bara.. nú er bara að bíða eftir lokaeinkunnum og útskriftinni sjálfri :-) þetta er búið að vera svo fljótt að líða þessi þrjú ár og vá hvað er búið að vera gaman! ég er ótrúlega ánægð og stolt af mér að hafa drifið mig af stað og klárað dæmið klapp fyrir mér hehe þannig að nú er það bara vinna og vinna.. og bíða eftir svari frá skólunum úti.. ég hef samt góða tilfinningu fyrir þessu og er orðin doldið spennt.. ólöf sys fer að fá sitt svar, hannes kominn inn þannig að allt lítur út fyrir að ásmundsdæturnar muni fara af landi brott í lok sumars :-)
Eurovision í kvöld.. er eitthvað að segja um það?? auðvitað vonar maður að íslandi gangi vel og allt það, en í fyrsta skipti núna held ég að íslendingar vonist aðallega eftir að við verðum ekki gerð að meiri fíflum, sama hver niðurstaðan verður... ég fer enn ekki af því að þetta voru mistök að senda hana.. en lítið við því að gera núna.
Það verður allavega djamm og tjútt á laugardaginn hjá mér, Inga skvísa að útskrifast í annað sinn, gaman að því.. mig drullulangar að kíkja á Nasa á laugardaginn í partýið hjá honum Palla, mega gaman alltaf þar.. spurning sko.. :-)
en jæja, best að halda áfram að vinna.. kærlig hilsen, Eva
